Tortillavefjur með hakki

Undirbúningstími 23 min Heildartími 23 mín
Skammtar: 2

Innihald

Instructions

Undirbúningur

  1. Skolið nýrnabaunirnar og leggið til hliðar

  2. Steikið hvítlaukinn upp úr olíu, bætið svo hakkinu við og bætið svo taco kryddinu og cumin við

  3. Þegar hakkið er orðið steikt bætið þá við hökkuðu tómötunum, nýrnabaununum og tómatmaukinu

  4. Salti og pipar bætt við eftir smekk

  5. Setjið hakkblönduna yfir í olíuborið eldfast mót

  6. Smyrjið tortillakökurnar með rjómaostinum, brjótið þær til helminga og skerið í tvennt þannig að þú fáir átta lokaðar tortilla sneiðar

  7. Raðið tortilla sneiðunum ofan á hakkblönduna og stráið rifnum osti yfir

  8. Eldaðu í ca. 15 mínutur við 200 gráður í ofni

  9. Berðu svo fram með sýrða rjómanum og td. soðnum hrísgrjónum.
    Ps. Það er mjög gott að strá ferskum kóríander yfir hrísgrjónin áður en þau eru borin fram.
    Verði þér að góðu :)